Erlent Kórónuveirufaraldur reið yfir fyrir 20.000 árum Mannfólk kann að hafa átt við kórónuveirufaraldur á við þann sem nú geisar fyrir um 20.000 árum, ef marka má nýja rannsókn sem birtist í virtu líffræðitímariti í síðustu viku. Erlent 28.6.2021 16:24 Mikill eldur á Elephant & Castle stöðinni í London Slökkvilið í London hefur verið kallað út vegna mikils elds á Elephant & Castle lestarstöðinni í suðausturhluta borgarinnar. Erlent 28.6.2021 14:41 Löfven segir af sér og hyggst reyna að mynda nýja stjórn Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, ætlar að segja af sér embætti. Hann hefur þó í hyggju að reyna að mynda nýja stjórn. Frá þessu greindi Löfven á blaðamannafundi klukkan 8:15 í morgun. Erlent 28.6.2021 08:25 Boða til neyðarfundar til að ræða útbreiðslu Delta-afbrigðisins Yfirvöld í Ástralíu hittast á neyðarfundi í dag til að ræða aukna útbreiðslu kórónuveirusmita í landinu en undanfarið hefur Delta-afbrigðið svokallaða verið að sækja verulega í sig veðrið. Erlent 28.6.2021 08:07 Forseti Tékklands segir trans fólk „viðbjóðslegt“ Milos Zeman, forseti Tékklands, kallaði trans fólk „viðbjóðslegt“ í viðtali við CNN Prima News í gær. Tilefnið var umræða um ný lög í Ungverjalandi, sem banna allt kennsluefni sem er talið „auglýsa“ samkynhneigð og hugmyndir um að fólk geti verið annars kyns en líffræðilegt kyn gefur til kynna. Erlent 28.6.2021 08:07 Komið að ögurstund hjá Löfven Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 8:15 að íslenskum tíma. Frestur hans til að tilkynna um næstu skref í kjölfar þess að þingið samþykkti vantraust á hann og ríkisstjórnina rennur út á miðnætti. Erlent 28.6.2021 07:36 Hitamet fellur í Kanada Hitabylgja gengur nú yfir Norður-Ameríku og í Kanada féll met í gær þegar hitamælirinn í þorpi einu í Bresku Kólombíu fór í 46,1 gráðu. Erlent 28.6.2021 06:54 Gerðu loftárásir á skotmörk á landamærum Íran og Sýrlands Bandaríkjaher gerði í gær loftárásir á landamærum Íraks og Sýrlands. Skotmörkin voru bækistöðvar og vopnabúr vígamanna sem halda til á svæðinu og njóta stuðnings Íransstjórnar. Erlent 28.6.2021 06:44 Grænlenskar stúlkur létu riffilskotin vaða Uppnám varð í þorpinu Ikamiut á vesturströnd Grænlands í dag þegar þrjár stúlkur á stolnum báti tóku upp á því að skjóta á þorpið af bátnum utan við höfnina. Íbúar voru beðnir um að halda sig frá hafnarsvæðinu meðan beðið væri aðstoðar lögreglu. Erlent 27.6.2021 23:59 Fyrirtæki Trump hefur til morguns að forðast ákæru Saksóknarar í New York hafa gefið lögmönnum fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, frest til morguns til að færa rök fyrir því að það ætti ekki að sæta ákæru vegna fjármála þess. Fjármálastjóri Trump-fyrirtækisins gæti einnig verið ákærður. Erlent 27.6.2021 23:30 Hitamet falla í heiftarlegri hitabylgju Svæsin hitabylgja gengur nú yfir norðvestur Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna og hafa hitamet þegar verið slegin á nokkrum stöðum um helgina. Viðvaranir hafa verið gefnar út vegna lífshættulegs hita. Erlent 27.6.2021 20:16 Leita áhorfanda sem olli stórum árekstri á Tour de France Franska lögreglan leitar nú að kvenkyns áhorfanda sem olli meiriháttar árekstri fjölda keppenda í fyrsta áfanga Tour de France-hjólreiðakeppninnar í gær. Áhorfandinn hélt á skilti og hallaði sér í veg fyrir hjólreiðagarpana. Erlent 27.6.2021 17:38 Enn bætist í hóp látinna á Flórída Tala látinna heldur áfram að hækka eftir hrun íbúðabyggingar á Flórída. Nú hafa alls níu manns fundist látin. Erlent 27.6.2021 16:44 Prófa bóluefni gegn Beta-afbrigðinu Bresk-sænski lyfjaframleiðandinn AstraZeneca hefur nú hafið prófanir á bóluefni gegn nýju afbrigði Covid-19, svokölluðu Beta-afbrigði veirunnar sem kennt er við Suður-Afríku. Erlent 27.6.2021 16:13 Segja alþýðuna miður sín yfir þyngdartapi Kim Á meðan hungursneyð ríkir í Norður-Kóreu greinir ríkismiðillinn, sem lýtur stjórn ríkisstjórnarinnar, frá því að alþýðan hafi áhyggjur af þyngdartapi leiðtoga síns, Kim Jong Un. Erlent 27.6.2021 14:05 Leynileg skjöl breska varnarmálaráðuneytisins fundust á stoppistöð Varnarmálaráðuneyti Bretlands rannsakar nú hvernig trúnaðarskjöl um aðgerðir breska hersins týndust í síðustu viku. Þau fundust aftur á strætóstoppistöð í Kent síðasta þriðjudag. Erlent 27.6.2021 10:28 Sajid Javid snýr aftur í bresku ríkisstjórnina Sajid Javid, fyrrverandi fjármálaráðherra og innanríkisráðherra Bretlands, verður næsti heilbrigðisráðherra eftir að Matt Hancock sagði af sér því embætti. Erlent 27.6.2021 08:29 Fimmta líkið fundið í rústum blokkarinnar en fjölda fólks enn saknað Tala látinna þegar hluti tólf hæða blokkar hrundi til grunna á Flórída hækkaði þegar yfirvöld staðfestu að fimmta líkið hefði fundist í rústunum. Enn er fleiri en 150 manns saknað á þriðja degi leitar að eftirlifendum. Erlent 26.6.2021 23:36 Tvístruðu gleðigöngu í Istanbúl með táragasi Tyrkneska lögreglan skaut táragasi á fólk sem tók þátt í gleðigöngu hinsegin fólks í Istanbúl í dag. Á þriðja tug manna voru handteknir en borgaryfirvöld höfðu lagt bann við hátíðinni. Erlent 26.6.2021 22:59 Snowden telur frétt Stundarinnar drepa málið gegn Assange Bandaríski uppljóstrarinn Edward Snowden telur að frétt Stundarinnar um lygar íslensks vitnis bindi enda á mál bandarískra yfirvalda gegn Julian Assange, stofnanda Wikileaks. Kjarni ákærunnar gegn Assange tengist þó ekki framburði íslenska vitnisins. Erlent 26.6.2021 22:24 Þrjár konur létust í árásinni í Würzburg Þrjú fórnarlömb árásarmanns sem gekk berserksgang með eggvopni í borginni Würzburg í Bæjaralandi í gær voru öll konur, að sögn lögregluyfirvalda. Hann særði auk þess fimm aðrar konur og eitt barn. Erlent 26.6.2021 20:14 Segir af sér fyrir að brjóta sóttvarnareglur við framhjáhald Matt Hancock hefur sagt af sér sem heilbrigðisráðherra Bretlands. Breskir miðlar birtu í vikunni myndir af ráðherranum og samstarfskonu hans þar sem þau sjást faðmast og kyssast. Erlent 26.6.2021 18:31 Meiriháttar skemmdir íbúðablokkarinnar lágu fyrir Verkfræðingar höfðu greint frá meiriháttar skemmdum á steypu íbúðablokkarinnar sem hrundi í bænum Surfside á Flórída fyrr í vikunni. Erlent 26.6.2021 15:12 „Eins og fólk hafi verið að sleppa úr fangelsi“ Næturlífið í Osló virðist hafa tekið við sér eftir samkomutakmarkanir þar í landi. Gæslumenn í miðborginni segja mikla óreiðu hafa ríkt þar síðustu daga. Erlent 26.6.2021 14:05 Fyrirtæki Trump gæti verið sótt til saka Embætti umdæmissaksóknari á Manhattan hefur tilkynnt fyrirtæki Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að það íhugi nú að ákæra það vegna hlunninda sem það veitti æðstu stjórnendum þess. Ákærur gætu jafnvel verið gefnar út á næstu dögum. Erlent 25.6.2021 23:47 Ekkja McAfee kennir Bandaríkjastjórn um dauða hans Dauði Johns McAfee, hugbúnaðarfrömuðsins umdeilda, í spænsku fangelsi er á ábyrgð Bandaríkjastjórnar, að sögn ekkju hans. McAfee beið framsals til Bandaríkjanna fyrir skattsvik og fleiri brot þegar hann stytti sér aldur. Erlent 25.6.2021 21:47 Nokkrir látnir í hnífaárás í Þýskalandi Að minnsta kosti þrír eru sagðir látnir og sex særðir eftir að karlmaður á þrítugsaldri gekk þar berserksgang með stóru eggvopni í borginni Würzburg í sunnanverðu Þýskalandi í dag. Árásarmaðurinn var handtekinn. Erlent 25.6.2021 20:28 Morðingi Floyd í meira en 22 ára fangelsi Derek Chauvin, fyrrverandi lögreglumaður í Minneapolis, var dæmdur í 22 og háfs árs fangelsi fyrir að verða George Floyd að bana með því að krjúpa á hálsi hans í fyrra. Drápið á Floyd varð kveikjan að miklum mótmælum í Bandaríkjunum og víða um heim. Erlent 25.6.2021 20:06 Hertar samkomutakmarkanir á Tenerife Stjórnvöld á Kanaríeyjum hafa tilkynnt að þriðja viðbragðsstig verði í gildi á Tenerife næstu tvær vikur. Erlent 25.6.2021 14:17 Fjórir látnir og 159 nú saknað í Miami Fjórir hafa fundist látnir og 159 er enn saknað eftir að tólf hæða íbúðablokk hrundi í Miami á Flórída í gærmorgun. Erlent 25.6.2021 14:01 « ‹ 331 332 333 334 ›
Kórónuveirufaraldur reið yfir fyrir 20.000 árum Mannfólk kann að hafa átt við kórónuveirufaraldur á við þann sem nú geisar fyrir um 20.000 árum, ef marka má nýja rannsókn sem birtist í virtu líffræðitímariti í síðustu viku. Erlent 28.6.2021 16:24
Mikill eldur á Elephant & Castle stöðinni í London Slökkvilið í London hefur verið kallað út vegna mikils elds á Elephant & Castle lestarstöðinni í suðausturhluta borgarinnar. Erlent 28.6.2021 14:41
Löfven segir af sér og hyggst reyna að mynda nýja stjórn Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, ætlar að segja af sér embætti. Hann hefur þó í hyggju að reyna að mynda nýja stjórn. Frá þessu greindi Löfven á blaðamannafundi klukkan 8:15 í morgun. Erlent 28.6.2021 08:25
Boða til neyðarfundar til að ræða útbreiðslu Delta-afbrigðisins Yfirvöld í Ástralíu hittast á neyðarfundi í dag til að ræða aukna útbreiðslu kórónuveirusmita í landinu en undanfarið hefur Delta-afbrigðið svokallaða verið að sækja verulega í sig veðrið. Erlent 28.6.2021 08:07
Forseti Tékklands segir trans fólk „viðbjóðslegt“ Milos Zeman, forseti Tékklands, kallaði trans fólk „viðbjóðslegt“ í viðtali við CNN Prima News í gær. Tilefnið var umræða um ný lög í Ungverjalandi, sem banna allt kennsluefni sem er talið „auglýsa“ samkynhneigð og hugmyndir um að fólk geti verið annars kyns en líffræðilegt kyn gefur til kynna. Erlent 28.6.2021 08:07
Komið að ögurstund hjá Löfven Stefan Löfven, forsætisráðherra Svíþjóðar, hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 8:15 að íslenskum tíma. Frestur hans til að tilkynna um næstu skref í kjölfar þess að þingið samþykkti vantraust á hann og ríkisstjórnina rennur út á miðnætti. Erlent 28.6.2021 07:36
Hitamet fellur í Kanada Hitabylgja gengur nú yfir Norður-Ameríku og í Kanada féll met í gær þegar hitamælirinn í þorpi einu í Bresku Kólombíu fór í 46,1 gráðu. Erlent 28.6.2021 06:54
Gerðu loftárásir á skotmörk á landamærum Íran og Sýrlands Bandaríkjaher gerði í gær loftárásir á landamærum Íraks og Sýrlands. Skotmörkin voru bækistöðvar og vopnabúr vígamanna sem halda til á svæðinu og njóta stuðnings Íransstjórnar. Erlent 28.6.2021 06:44
Grænlenskar stúlkur létu riffilskotin vaða Uppnám varð í þorpinu Ikamiut á vesturströnd Grænlands í dag þegar þrjár stúlkur á stolnum báti tóku upp á því að skjóta á þorpið af bátnum utan við höfnina. Íbúar voru beðnir um að halda sig frá hafnarsvæðinu meðan beðið væri aðstoðar lögreglu. Erlent 27.6.2021 23:59
Fyrirtæki Trump hefur til morguns að forðast ákæru Saksóknarar í New York hafa gefið lögmönnum fyrirtækis Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, frest til morguns til að færa rök fyrir því að það ætti ekki að sæta ákæru vegna fjármála þess. Fjármálastjóri Trump-fyrirtækisins gæti einnig verið ákærður. Erlent 27.6.2021 23:30
Hitamet falla í heiftarlegri hitabylgju Svæsin hitabylgja gengur nú yfir norðvestur Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna og hafa hitamet þegar verið slegin á nokkrum stöðum um helgina. Viðvaranir hafa verið gefnar út vegna lífshættulegs hita. Erlent 27.6.2021 20:16
Leita áhorfanda sem olli stórum árekstri á Tour de France Franska lögreglan leitar nú að kvenkyns áhorfanda sem olli meiriháttar árekstri fjölda keppenda í fyrsta áfanga Tour de France-hjólreiðakeppninnar í gær. Áhorfandinn hélt á skilti og hallaði sér í veg fyrir hjólreiðagarpana. Erlent 27.6.2021 17:38
Enn bætist í hóp látinna á Flórída Tala látinna heldur áfram að hækka eftir hrun íbúðabyggingar á Flórída. Nú hafa alls níu manns fundist látin. Erlent 27.6.2021 16:44
Prófa bóluefni gegn Beta-afbrigðinu Bresk-sænski lyfjaframleiðandinn AstraZeneca hefur nú hafið prófanir á bóluefni gegn nýju afbrigði Covid-19, svokölluðu Beta-afbrigði veirunnar sem kennt er við Suður-Afríku. Erlent 27.6.2021 16:13
Segja alþýðuna miður sín yfir þyngdartapi Kim Á meðan hungursneyð ríkir í Norður-Kóreu greinir ríkismiðillinn, sem lýtur stjórn ríkisstjórnarinnar, frá því að alþýðan hafi áhyggjur af þyngdartapi leiðtoga síns, Kim Jong Un. Erlent 27.6.2021 14:05
Leynileg skjöl breska varnarmálaráðuneytisins fundust á stoppistöð Varnarmálaráðuneyti Bretlands rannsakar nú hvernig trúnaðarskjöl um aðgerðir breska hersins týndust í síðustu viku. Þau fundust aftur á strætóstoppistöð í Kent síðasta þriðjudag. Erlent 27.6.2021 10:28
Sajid Javid snýr aftur í bresku ríkisstjórnina Sajid Javid, fyrrverandi fjármálaráðherra og innanríkisráðherra Bretlands, verður næsti heilbrigðisráðherra eftir að Matt Hancock sagði af sér því embætti. Erlent 27.6.2021 08:29
Fimmta líkið fundið í rústum blokkarinnar en fjölda fólks enn saknað Tala látinna þegar hluti tólf hæða blokkar hrundi til grunna á Flórída hækkaði þegar yfirvöld staðfestu að fimmta líkið hefði fundist í rústunum. Enn er fleiri en 150 manns saknað á þriðja degi leitar að eftirlifendum. Erlent 26.6.2021 23:36
Tvístruðu gleðigöngu í Istanbúl með táragasi Tyrkneska lögreglan skaut táragasi á fólk sem tók þátt í gleðigöngu hinsegin fólks í Istanbúl í dag. Á þriðja tug manna voru handteknir en borgaryfirvöld höfðu lagt bann við hátíðinni. Erlent 26.6.2021 22:59
Snowden telur frétt Stundarinnar drepa málið gegn Assange Bandaríski uppljóstrarinn Edward Snowden telur að frétt Stundarinnar um lygar íslensks vitnis bindi enda á mál bandarískra yfirvalda gegn Julian Assange, stofnanda Wikileaks. Kjarni ákærunnar gegn Assange tengist þó ekki framburði íslenska vitnisins. Erlent 26.6.2021 22:24
Þrjár konur létust í árásinni í Würzburg Þrjú fórnarlömb árásarmanns sem gekk berserksgang með eggvopni í borginni Würzburg í Bæjaralandi í gær voru öll konur, að sögn lögregluyfirvalda. Hann særði auk þess fimm aðrar konur og eitt barn. Erlent 26.6.2021 20:14
Segir af sér fyrir að brjóta sóttvarnareglur við framhjáhald Matt Hancock hefur sagt af sér sem heilbrigðisráðherra Bretlands. Breskir miðlar birtu í vikunni myndir af ráðherranum og samstarfskonu hans þar sem þau sjást faðmast og kyssast. Erlent 26.6.2021 18:31
Meiriháttar skemmdir íbúðablokkarinnar lágu fyrir Verkfræðingar höfðu greint frá meiriháttar skemmdum á steypu íbúðablokkarinnar sem hrundi í bænum Surfside á Flórída fyrr í vikunni. Erlent 26.6.2021 15:12
„Eins og fólk hafi verið að sleppa úr fangelsi“ Næturlífið í Osló virðist hafa tekið við sér eftir samkomutakmarkanir þar í landi. Gæslumenn í miðborginni segja mikla óreiðu hafa ríkt þar síðustu daga. Erlent 26.6.2021 14:05
Fyrirtæki Trump gæti verið sótt til saka Embætti umdæmissaksóknari á Manhattan hefur tilkynnt fyrirtæki Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, að það íhugi nú að ákæra það vegna hlunninda sem það veitti æðstu stjórnendum þess. Ákærur gætu jafnvel verið gefnar út á næstu dögum. Erlent 25.6.2021 23:47
Ekkja McAfee kennir Bandaríkjastjórn um dauða hans Dauði Johns McAfee, hugbúnaðarfrömuðsins umdeilda, í spænsku fangelsi er á ábyrgð Bandaríkjastjórnar, að sögn ekkju hans. McAfee beið framsals til Bandaríkjanna fyrir skattsvik og fleiri brot þegar hann stytti sér aldur. Erlent 25.6.2021 21:47
Nokkrir látnir í hnífaárás í Þýskalandi Að minnsta kosti þrír eru sagðir látnir og sex særðir eftir að karlmaður á þrítugsaldri gekk þar berserksgang með stóru eggvopni í borginni Würzburg í sunnanverðu Þýskalandi í dag. Árásarmaðurinn var handtekinn. Erlent 25.6.2021 20:28
Morðingi Floyd í meira en 22 ára fangelsi Derek Chauvin, fyrrverandi lögreglumaður í Minneapolis, var dæmdur í 22 og háfs árs fangelsi fyrir að verða George Floyd að bana með því að krjúpa á hálsi hans í fyrra. Drápið á Floyd varð kveikjan að miklum mótmælum í Bandaríkjunum og víða um heim. Erlent 25.6.2021 20:06
Hertar samkomutakmarkanir á Tenerife Stjórnvöld á Kanaríeyjum hafa tilkynnt að þriðja viðbragðsstig verði í gildi á Tenerife næstu tvær vikur. Erlent 25.6.2021 14:17
Fjórir látnir og 159 nú saknað í Miami Fjórir hafa fundist látnir og 159 er enn saknað eftir að tólf hæða íbúðablokk hrundi í Miami á Flórída í gærmorgun. Erlent 25.6.2021 14:01